hér í tölvuverunum. Ég er búinn að fá ógeð á AutoCad án þess að hafa nokkurn tímann notað það…
Nú er orðið ansi mikið að gera í skólanum þessa dagana svo ég sá hérna kjörið tækifæri til þess að fresta því aðeins. Svo hérna kemur annað ofurraunsæja hversdagsnaflaskoðunar-ljóðið mitt:
do
{
yourThing();
}
while(stillAlive);
að komast í tölvuver hérna í VR þessa dagana. Það er allt troðfullt af véla- og byggingaverkfræðinemum sem þurfa að komast í einhver teikniforrit, Auto… paintbrush eða eitthvað álíka.
af ofurraunsæju hversdagsnaflaskoðunar-ljóðunum mínum:
for(ever)
{
getUp();
eat();
gotoSchool();
eat();
doHomework();
eat();
watchTV();
eat();
sleep();
}
or die("RIP");
að maður er ekki bloggtýpan þegar maður eyðir meiri tíma í að forrita vefinn þannig að hann t.d. hrynji ekki þegar kemur nýr mánuður án bloggs en maður bloggar…
Sko, fyrst kom mars, og þá datt síðan út því það var ekkert búið að blogga þá. Þannig að ég breytti síðunni svo hún gæti einfaldlega birt febrúar í mars þegar enginn mars var… eða þannig sko. Svo það var kannski kominn tími til að segja eitthvað.
Í dag er fyrsti apríl. Ég tel ekki þörf fyrir drastískar varúðarráðstafanir en verð þó var um mig. Gæti verið gaman að kíkja í ráðhúsið þó, klukkan 3. Gaman að kíkja á þessa tímavél, og spjalla við Fischer…
Svo er hér líka aprílgabb.
Nýjustu komment
RSS