Daily Archive for desember 15th, 2004

Svartsýni

Ég vil ekki hljóma svartsýnn, en HEIMUR VERSNANDI FER! Nei, ég segi svona. En stundum fær maður það á tilfinninguna. Það er búið að samþykkja hækkun á svokölluðum skrásetningargjöldum við ríkisreknu háskólana. Ég sendi nú þingmönnum og rektorum örlítið breytta útgáfu af mótmælabréfinu sem stúdentaráð kokkaði upp en fékk bara nokkur svör frá stjórnarandstöðunni. Ónefndur framsóknarmaður hélt því fram að framsóknarmenn svari ekki svona pósti vegna þess að það sé of mikið að gera hjá þeim… Einmitt það jáh. Ætli það sé ekki vegna þess að ógnarstjórn forystu framsóknarflokksins myndiklippa á völd viðkomandi þingmanns sem dirfðist að láta í ljós einhverja sjálfstæða skoðun á málinu med det samme… Ég var nú vonsvikinn með þessa Dagnýju þarna, hún sem var nú formaður stúdentaráðs og barðist gegn sams konar hækkun á sínum tíma. O jæja, ef maður vill ná langt…

Annars var ég að skoða lagasafnið aðeins; árið 2001 voru skrásetningargjöld (þá 25.000 kr) hækkuð upp í 32.500. Nú, aðeins þremur árum seinna er hækkað um svipaða prósentutölu upp í 45.000. 80% hækkun á þremur árum? Talandi um eðlilega verðlagsþróun…

Annars eru tvö próf búin og þrjú eftir. Ég hef aldrei verið eins stressaður fyrir eitt próf og í dag, Stærðfræðigreiningu. En ég held hún hafi sloppið.

Svo ætlaði ég að benda ykkur á að skoða umræðurnar á pistli frá honum Palla, mjög áhugaverðar pælingar bæði raunvísinda- og félagsvísindalega séð.