Óréttlæti heimsins er algjört. Það er óumflýjanlegt og eilíft. Í gær var ætlunin að reikna nokkur gömul próf úr Línunni. Eins og svo oft áður var lítið um borð í VRII svo við fórum niður í kjallara í Endurmenntun. Eftir klukkutíma þar kom einhver kerlíng og rak okkur burt! Ástæðan var sú að þeir sem eru í námskeiðum hjá Endurmenntun verða svo fúlir þegar (og ég vitna orðrétt) “krakkaskítar” taka borðin þeirra… Einnig að þeir borga miklu meira en við.
Ég hafði það sterklega á tilfinningunni hvernig gyðingum leið í Þýskalandi fyrir svona rúmum 60 árum og mér datt í hug að spyrja hana hvort það væri ekki best að við óbreyttir háskólanemar værum bara með borða um upphandlegginn svo það væri auðveldara að þekkja okkur frá fína liðinu en sleppti því, hún fann svo til með okkur nefnilega.
Prófin nálgast skuggalega hratt, það er ekki laust við að stressið geri vart við sig. Nú eru um 10 dagar í fyrsta próf, síðustu tveir dagar hafa farið í að reikna gömul próf í Línu og Greiningu og næstu viku og daga verður ekkert annað gert hugsa ég.
Annars setti ég upp smá tengil undir “1. misseri” sem heitir Verkefni. Þar setti ég tvö verkefni sem ég hef unnið á önninni. Veit nú ekki hvort það kemur eitthvað meira þessa önnina, kemur í ljós.
Nýjustu komment
RSS