Monthly Archive for desember, 2004

Nýjustu tölur

Samkvæmt nýjustu tölum virðist ég tala mest við Jón Örn á MSN. Fast á hæla honum kemur Völundur, því næst Auður langt á eftir þeim tveimur og svo Ármann. Þessar niðurstöður mínar miða við stærðina á loggskránum sem MSN býr til og þetta nær einungis til ársins 2004…

While Próf > 0

Þá eru prófin að verða búin. Síðasta á morgun, tölvunarfræði. Það var það fag sem ég hef minnstar áhyggjur af svo að á föstudaginn fór ég bara á Selfoss í útskriftarpartý hjá Elínu. Það var ágætt þar, en ætlaði reyndar heim snemma daginn eftir. Þá var bara ekki séns að koma Auði á lappir, hún ætlaði með, svo við lögðum ekki af stað fyrr en 5-6. Fórum þá í Smáralindina til klukkan hálf-tíu að versla gjafir og jóladót. Þegar heim var komið var bara teboð í gangi heima sem endaði með því að Auður var að vakna rétta áðan.

Það er nú annars merkilegt hvað maður lærir lítið þegar maður ætti að vera að læra. Manni dettur bara svo margt annað í hug til að gera…

Jæja, ætli maður fari ekki að kíkja eitthvað á klasana og fjölbrigðnina.

Svartsýni

Ég vil ekki hljóma svartsýnn, en HEIMUR VERSNANDI FER! Nei, ég segi svona. En stundum fær maður það á tilfinninguna. Það er búið að samþykkja hækkun á svokölluðum skrásetningargjöldum við ríkisreknu háskólana. Ég sendi nú þingmönnum og rektorum örlítið breytta útgáfu af mótmælabréfinu sem stúdentaráð kokkaði upp en fékk bara nokkur svör frá stjórnarandstöðunni. Ónefndur framsóknarmaður hélt því fram að framsóknarmenn svari ekki svona pósti vegna þess að það sé of mikið að gera hjá þeim… Einmitt það jáh. Ætli það sé ekki vegna þess að ógnarstjórn forystu framsóknarflokksins myndiklippa á völd viðkomandi þingmanns sem dirfðist að láta í ljós einhverja sjálfstæða skoðun á málinu med det samme… Ég var nú vonsvikinn með þessa Dagnýju þarna, hún sem var nú formaður stúdentaráðs og barðist gegn sams konar hækkun á sínum tíma. O jæja, ef maður vill ná langt…

Annars var ég að skoða lagasafnið aðeins; árið 2001 voru skrásetningargjöld (þá 25.000 kr) hækkuð upp í 32.500. Nú, aðeins þremur árum seinna er hækkað um svipaða prósentutölu upp í 45.000. 80% hækkun á þremur árum? Talandi um eðlilega verðlagsþróun…

Annars eru tvö próf búin og þrjú eftir. Ég hef aldrei verið eins stressaður fyrir eitt próf og í dag, Stærðfræðigreiningu. En ég held hún hafi sloppið.

Svo ætlaði ég að benda ykkur á að skoða umræðurnar á pistli frá honum Palla, mjög áhugaverðar pælingar bæði raunvísinda- og félagsvísindalega séð.

Óréttlæti

Óréttlæti heimsins er algjört. Það er óumflýjanlegt og eilíft. Í gær var ætlunin að reikna nokkur gömul próf úr Línunni. Eins og svo oft áður var lítið um borð í VRII svo við fórum niður í kjallara í Endurmenntun. Eftir klukkutíma þar kom einhver kerlíng og rak okkur burt! Ástæðan var sú að þeir sem eru í námskeiðum hjá Endurmenntun verða svo fúlir þegar (og ég vitna orðrétt) “krakkaskítar” taka borðin þeirra… Einnig að þeir borga miklu meira en við.

Ég hafði það sterklega á tilfinningunni hvernig gyðingum leið í Þýskalandi fyrir svona rúmum 60 árum og mér datt í hug að spyrja hana hvort það væri ekki best að við óbreyttir háskólanemar værum bara með borða um upphandlegginn svo það væri auðveldara að þekkja okkur frá fína liðinu en sleppti því, hún fann svo til með okkur nefnilega.

Prófin nálgast skuggalega hratt, það er ekki laust við að stressið geri vart við sig. Nú eru um 10 dagar í fyrsta próf, síðustu tveir dagar hafa farið í að reikna gömul próf í Línu og Greiningu og næstu viku og daga verður ekkert annað gert hugsa ég.

Annars setti ég upp smá tengil undir “1. misseri” sem heitir Verkefni. Þar setti ég tvö verkefni sem ég hef unnið á önninni. Veit nú ekki hvort það kemur eitthvað meira þessa önnina, kemur í ljós.