Monthly Archive for nóvember, 2004

Hérna síðast

sagði ég frá hetjulegri tilraun minni til þess að vera duglegur að læra heima fyrir prófið… Við skulum bara segja að duglegheitin voru búin þegar læra átti undir prófið, tók einhverja smáskorpu en það dugði lítið. Það kemur í ljós á föstudaginn hvernig þetta fór.

Annars gengur lífið sinn vanagang, enda ekki við öðru að búast. Ímyndið ykkur bara ef lífið gengi ekki alltaf sinn vanagang. Það væru stöðugt einhverjir skrítnir atburðir að eiga sér stað sem fokka upp deginum hjá manni. Þannig er lífið nú bara í Tinnabókunum.

Svo maður bara heldur áfram, læra, elda, borða, vaska upp, sópa gólfið, hita te og kaffi, rista brauð, sofa, læra, læra meira, borða óreglulega, sofa óreglulega, klúðra prófi…

Enda er ágætt að hafa eitthvað til að stefna að.

Lestrarfrí = Stofufangelsi

Jæja, þá eru heimadæmi í Línulegri algebru og Stærðfræðigreiningu búin 3 dögum fyrir skilafrest, heimadæmi í Eðlisfræði hálfnuð á sunnudagskveldi (skil miðvikudagskvöld) og skýrslan í Eðlisfræði alveg eftir (skil á fimmtudag). Þá hef ég 4 daga til þess að klára heimadæmi í Eðlisfræði, vinna skýrslu með Ragga, og læra undir próf í Stærðfræðigreiningu. Nokkuð gott, þó ég segi sjálfur frá…

Annars fórum við á Selfoss um helgina. Maður hefur nú lítið þangað að gera þessa dagana nema að hitta fjölskylduna náttúrulega. Það er nú ágætt svona inn á milli skólans. Auður varð svo eftir á Selfossi, lestrarfrí í Þjóðfræðinni næstu vikuna. Ég kýs að kalla þetta stofufangelsi, enda ekkert annað. Auðvitað er þetta til þess gert að hífa aðeins upp magnið af texta sem lesinn er og fjölda orða sem skrifuð eru í ritgerðum. Sem er ágætt. En já, þannig að við Bylgja erum bara ein á Víðimelnum. Ætli það verði ekki bara ruslfæði öll kvöld?