Jæja, þá eru heimadæmi í Línulegri algebru og Stærðfræðigreiningu búin 3 dögum fyrir skilafrest, heimadæmi í Eðlisfræði hálfnuð á sunnudagskveldi (skil miðvikudagskvöld) og skýrslan í Eðlisfræði alveg eftir (skil á fimmtudag). Þá hef ég 4 daga til þess að klára heimadæmi í Eðlisfræði, vinna skýrslu með Ragga, og læra undir próf í Stærðfræðigreiningu. Nokkuð gott, þó ég segi sjálfur frá…
Annars fórum við á Selfoss um helgina. Maður hefur nú lítið þangað að gera þessa dagana nema að hitta fjölskylduna náttúrulega. Það er nú ágætt svona inn á milli skólans. Auður varð svo eftir á Selfossi, lestrarfrí í Þjóðfræðinni næstu vikuna. Ég kýs að kalla þetta stofufangelsi, enda ekkert annað. Auðvitað er þetta til þess gert að hífa aðeins upp magnið af texta sem lesinn er og fjölda orða sem skrifuð eru í ritgerðum. Sem er ágætt. En já, þannig að við Bylgja erum bara ein á Víðimelnum. Ætli það verði ekki bara ruslfæði öll kvöld?
Nýjustu komment
RSS