Það er fátt sem jafnast á við offullan, sjóðheitan bolla af útrunnu kaffi frá Costa Rica. Það eru dæmi um að gestir hafi fengið í magann af þessu kaffi en ég blæs á það. Hah! Ég er með járnmaga.
Annars eru horfur á því að ég skili skýrslu í dag, loksins. Ég held ég fari þá núna að klára hana.

Nú tókst mér að klúðra deginum helvíti vel. Ég byrjaði á því að vinna skýrslu í eðlisfræði í gær, en komst síðan að því að þeir sem unnu saman að tilraunum máttu ekki skila skýrslu um sömu tilraun. Heyrðu jú, var ég ekki bara að gera akkúrat sömu skýrslu og Raggi… Jæja, þá var margra tíma vinna sem sagt farinn í vaskinn og ég þurfti að byrja á nýrri skýrslu í dag… Ég fékk nú reyndar einhvern lengri frest þannig að þetta hlýtur að sleppa.

Ágætis dagur í dag, mætti í tíma sem hafði fyrir löngu fallið niður, var í gati þar á eftir svo ég dundaði mér bara eitthvað þar til kom að Stærðfræðigreiningar-blundinum. Svo bara fór ég með Garðari og Ragga í Matlab verkefnið, en það snýst um að dulkóða og afkóða með RSA dulkóðun. Fór svo að vinna í þráðlausa netinu í Tæknigarði, kom heim, við elduðum bjúgu með jafningi og kartöflum. Eftir það fór ég út í VR að reikna í Línunni, kom svo heim um 23:50 og hér er ég! Bara enn einn dagurinn. Og einum færri í próf.

Lítið að frétta, skólinn á fullu eins og venjulega.
Jæja, þá er komið að því: 3 grískir stafir á hverjum degi! Ég ætla sem sagt að birta 3 nýja stafi úr gríska stafrófinu á hverjum degi og byrja á þeim fyrstu að sjálfsögðu:

Fór á Quizno’s áðan með Vjöz og Bylgju. Ekkert merkilegt svo sem nema að það var einhver gaur þar að kaupa sér meters langan bát! Alveg svakalegt. Og hann var sem sagt í hörkuviðræðum við gaurinn sem var að vinna þarna um hversu miklu mætti sleppa. Hann valdi sér sem sagt ítalskan bát og sleppti einu áleggi. En málið var sem sagt að hann mátti bara sleppa einu áleggi. Svo við fórum eitthvað að tala við gaurinn og það kom í ljós að Quizno’s eru með svona leik í gangi. Ef þú ert fljótastur að klára svona risabát færðu ferð til London. Og þetta er í gangi til 1. des. Metið er víst 55 mínútur og við nenntum ekki að bíða til að sjá hvort gaurinn næði að slá metið…
Svo fór ég með Völla á Sky Captain & the World of Tomorrow. Þetta var nokkuð góð mynd verð ég að segja. Rosa töff lúkk á henni, náttúrulega bara effectað og fílterað og textjúrað til ánskotans! Þetta er víst framtíðin, engar rándýrar sviðsmyndir og óhagkvæm filma lengur. Bara allt digital og svo 50 photoshop-nördar…
Nýjustu komment
RSS