Monthly Archive for október, 2004

Bílar

Fyrir nokkrum árum vorum við Vjöz að spá í hversu marga bíla maður hefði nú keyrt um þessa stuttu ævi manns. Ég bjó til excel skjal á sínum tíma og reyndi að muna alla þá bíla sem ég hef keyrt. Ég fann svo þetta excel skjal aftur um daginn og þetta virðist vera niðurstaðan eftir að bílar undanfarinna ára eru komnir á listann:

 1.mitsubishi galant     m+p
 2.toyota camry          m+p
 3.iveco                 pabbi
 4.corolla               auður
 5.zetor '83             skógrækt
 6.zetor '83 #2          skógrækt
 7.Deutz                 skógrækt
 8.L-300                 skógrækt
 9.nissan                Loftur/skógrækt
10.ford                  skógrækt
11.poly-ice              mummi
12.patrol (hvíti)        mummi
13.avensis               ármann
14.avensis (grænn)       þráinn ökukennari
15.rav4                  afi
16.nissan almera         Ragnheiður frænka
17.golf                  ármann
18.polo                  trs
19.polo #2               trs
20.Noname                kiddi/trs
21.toyota hilux          árborg
22.nissan eitthvað       árborg
23.toyota hilux #2       árborg
24.space wagon           solla og viðar
25.nissan                hjalti
26.mazdan 323            gummi f
27.mitsubishi bílal.bíll árborg
28.subaru impreza        skógrækt
29.golf                  egill
30.renault               örlygur
31.golfbíll              í mexíkó
32.rav4 #2               afi
33.rauður patrol         solla og viðar

Svo eru nokkrir bílar í viðbót sem ég er ekki viss um að hafa keyrt. Sleppi þeim í bili.

Plugin Baby

Ég ætlaði bara að sýna ykkur hérna þetta plugin fyrir Firefox sem ég bjó til, það er til þess að leita á WikiPedia. Mjög sniðugt ef maður er oft að fletta upp í alfræðiorðabók eða er bara forvitinn að eðlisfari.

Svo er ég búinn að setja upp svona kommentakerfi, maður verður víst að hafa þessa hluti í lagi. Sérstaklega þegar maður baunar á aðra sem eiga erfitt með kommentin…

Annars var Staðfastur kallinn búinn að opna kommentin aftur, hann er eitthvað að linast greyið.

Ritskoðun

Jæja, ég lenti í hinni alræmdu ritskoðun Staðfasts. Hann ýjar að því, þrátt fyrir miklar annir, að núverandi fyrirkomulag í menntamálum sé ekki fullnægjandi, börn séu best menntuð hjá foreldrum sínum. Til að gera langa sögu stutta bendi ég ykkur á að lesa pistilinn hans sem ég tengdi í.

Nú, ég sá að það voru komment. Þau litu svona út:

Anonymous said…
Já, til dæmis helvítis kristinfræðin.
8:10 PM
Anonymous said…
Ég átti nú við hina miklu beinu og óbeinu sósealistísku innrætingu sem þar á fer fram.
Staðfastur
8:02 AM
Anonymous said…
Ég er sammála því að leyfa eigi foreldrum, líkt og gert er í Noregi, að kenna börnunum heima. Reyndar hef ég smá áhyggjur að það gæti komið í veg fyrir aðlögun t.d. innflytjendabarna og annarra að samfélaginu, hvar þeim er nauðsynlegt að kunna skil á hinum kristna grunni samfélagsins (líkt og kristinfræðin gerir) og þjóðfrelsisbaráttunni, en slíkt væri hægt að gera í gegnum regluleg próf í skólunum, líkt og samræmdu próf grunnskólana eru t.d. eða á annan hátt.
Ungur Íhaldsmaður

Ég ákvað þrátt fyrir að slæmt orð fari af kommentakerfi Staðfasts að gera athugasemd við þetta. Hér er hún:

Hvernig er hægt að tryggja að allir foreldrar geti veitt börnum sínum nægilega grunnmentun? Það er varla hægt að tryggja að öll börn nái fullri grunnmenntun í núverandi kerfi, hvernig á þá að framkvæma það heima við, þar sem margfalt erfiðara yrði að hafa eftirlit með menntun? Auk þess sem samfélagsbreytingar undanfarna áratugi hafa valdið því að báðir foreldrar vinna yfirleitt úti, hvar á að finna tíma til að mennta börnin? Menntakerfi er einn af þeim hlutum sem tilheyrir hinu opinbera. Þetta er sjálfsögð þjónusta við samfélagið sem erfitt yrði að leggja niður og láta foreldrum eftir. Betri kostur væri að leggja meira fjármagn í menntun og bæta núverandi kerfi.

Um leið og ég póstaði þessu hvarf þetta þar sem Staðfastur hafði hreinlega slökkt á athugasemdunum og hreinsað út þær sem þegar höfðu komið. Mér tókst að bjarga minni og hinum með því að nota back takkann.

Þetta er greinilega enn eitt dæmið um ritskoðun Staðfasts… Og styrkir á vissan hátt kenningu Bjössa um að Staðfastur vilji líkja eftir hægrisinnuðu yfirvaldi með því að kæfa alla frjálsa umræðu helst áður en hún byrjar.

Mér finnst þetta bara lúalegt bragð hjá manni sem er greinilega hræddur við gagnrýni. Hann er hræddur við að skoðanir hans standist ekki frjálsa umræðu og lokar því fyrir að slíkt geti gerst. Hann vill standa uppi á stól og predika yfir hjörðinni en um leið og eitt jarm heyrist á móti eru allar rollurnar bundnar og keflaðar.

Blogg um blogg

Ég var á mínu mánaðarlega vafri um hinar ýmsu bloggsíður Íslendinga og hafði gaman af því, það er eitthvað svo gaman að fylgjast með lífi fólks úr hæfilegri fjarlægð. Líka þeim sem maður þekkir ekki.

En á þessu vafri sem sagt fór ég smám saman að hugsa: Fjári er þetta mikið af texta. Þetta er nefnilega óhemjumikið. Þvílíkt og annað eins magn! Ef eitthvað er að marka þetta eru bloggsíður einstaklinga á Íslandi sennilega orðnar vel á 5. þúsundið þegar þetta er skrifað. Þær voru tæplega 4000 fyrir rúmlega ári síðan svo það er eðlilegt að gera ráð fyrir einhverjum vexti. En jafnvel þó maður miði við eldri tölur, segjum 4000 bloggsíður, er það nú alveg ánskoti nóg.

4000 síður og gróflega áætlað klukkutími á viku á mann skrif og lestur. Jafnvel meira. Það eru 4000 stundir á viku, 208.000 á ári! Það er hundraðfalt meira en t.d. einn maður vinnur á ári miðað við 40. stunda vinnuviku!

Góða hliðin á þessu er nú samt kannski sú að með þessu er fólk að tjá sig, sem er náttúrulega orðið afar sjaldgæft á okkar tímum. Kannski ætti þetta bara að vera skylda, skikka alla til að blogga. Hm. Nei, kannski ekki.

En já, ætli ég fari ekki í bólið. Auður sturtar í sig kaffinu til þess að klára lokaritgerð í einum áfanga, ég held ég fari að sofa. Og já, meðan ég man, nú eyddi ég u.þ.b. kortéri í skrifin, svo ég hef lagt eitthvað af mörkum í dag til lækkunar þjóðarframleiðslu…

Staðfastur = Bjössi

Athyglisverð kenning hefur komið fram: Staðfastur er í raun Björn. Hah! Komst upp um þig, melur! Þetta liggur í augum uppi.

"Ég sé að mister bollason hefur líka velt því upp að
"Staðfastur" sé háðfugl, og það tæpri viku á undan
mér. Þetta er greinilega augljósara en ég hélt..
eru þetta kannske gamlar fréttir sem ég fékk bara
ekkert veður af?"  - BUV

Hann reynir að sýna fram á að hann sjálfur hafi fundið þetta út, svona til að sýna að hann er einn af þeim sem leita hins rétta andlits hins dularfulla Staðfasts. Og um leið bendir hann á það að aðrir hafi fundið þetta út og það löngu á undan sjálfum sér svo þetta styrkir kenningu hans um að Staðfastur sé háðfugl. Hann hefur sem sagt lagt sig fram um það að sýna fram á að hann sé ekki Staðfastur og hnykkir á því með því að segja að þetta sé eitthvað sem hafi algerlega og bersýnilega farið fram hjá honum.

Nú er Bjössi mikill háðfugl sjálfur og hans bestu sprettir eru þegar hann hæðist að hinu og þessu, sem er oft á tíðum drepfyndið.

Þetta kristallast ef til vill í eftirfarandi rökhendu:

(1) Bjössi er Staðfastur.
(2) Staðfastur er háðfugl.

Nú setjum við einfaldlega ‘háðfugl’ úr (2) í staðinn fyrir ‘Staðfastur’ í (1) og fáum út:

(3) Bjössi er háðfugl.

Setning (3) á afskaplega vel við Bjössa svo setning (1) er mjög sennileg og hreinlega óumdeilanlega sönn.

Ég tek það fram að Jón Örn vakti athygli mína á þessari staðreynd.

Ég held ég verði að

vera sammála Bjössa í Staðfasts-málinu. Maður hreinlega trúir því ekki að nokkur sé svona hrikalega íhaldssamur. Maður hefði svo sem átt að sjá það, allur textinn er skrifaður í þessum hæðnitón sem fær mann jafnframt til að öskra á tölvuskjáinn sinn.

Ég bíð spenntur eftir næstu færslu, þær nýjustu virðast eiga að sýna að skrifari er mannlegur og sinnir skyldum fjölskylduföðurins um leið og hann sinnir því að upplýsa almúgann. Takið eftir hvernig talað er á þóttafullan hátt um “móðinsföt” og “illa hirt börn og unglinga”.

Prófið á föstudag

gekk nú bara ágætlega. Var nú bara snöggur að því, átti góðan hálftíma eftir af tveimur tímum og sat nú bara og skoðaði prófið í kortér þangað til ég nennti ekki meir og gekk út.

Við vorum í ágætis matarboði hjá Gumma og spúsu í kvöld. Hann einmitt bauð okkur og V og K í mat en þar sem hann gleymdi að hann þurfti að vinna var hann ekkert í matnum, melurinn. Það var annars boðið upp á ostafondue sem var mjög gott. Eftir það datt okkur í hug að gera súkkulaðifondue svo við Vjöz fórum hættuför í búðina að kaupa hráefni. Ég vil bara koma því á framfæri að greip er ekki gott með súkkulaðifondue.

Svo vorum við líka leyst út með gjöfum, ansi skemmtilegt það. Ég fékk bókina The assault on the West, stórgóða bók frá 1968 eftir Ian Greig. Í henni er m.a. að finna afar tæmandi lista yfir kommúnistaflokka heimsins á þessum árum. Ég er ekki búinn að finna út hvort þessi bók er áróður gegn Vestrinu eða kommúnismanum. Allavega, spennandi lesning framundan… Smá sýnishorn hérna:

Iceland
Socialist Unity Party of Iceland
pro-Soviet        About 1,000 members
                  Legal
                  19 seats in Parliament together
                  with Left Socialists in
                  'Labor Alliance'
                  Chairman: Einar Olgeirsson
                  Organ: Thjodviljinn

Folkealliancen
not thoroughly    Founded March 1966
pro-Chinese       Chairman: M. T. Olafsson

Svo mörg voru þau orð…

Englar og Djöflar

Angels and Demons var ágæt. En eiginlega ekkert meira verð ég að segja. Jú, mjög spennandi eins og Da Vinci Code og ágætis plott í flesta staði. Verður hins vegar dálítið klén undir lokin en það bjargast fyrir horn með loka-viðsnúningi í þræðinum. Í heildina góð afþreying og mæli með henni fyrir þá sem hafa áhuga á elsta stríði mannkyns, milli trúar og vísinda.

Próf á morgun, verð að muna að mæta með skilríki svo mér verði ekki meinaður aðgangur…

Skotbolti!

Nú sit ég í sal 1 í Háskólabíói. Ég verð að fara að hætta að sofa í Stærðfræðigreiningu. Hef reynt að vinna gegn þessu, fékk mér kaffibolla áðan en það virkaði ekki nógu vel, hélt bara áfram að dotta.

Við fórum í bíó í gær ásamt Ragnheiði frænku og Bryndísi systur minni. Sáum Dodgeball: A True Underdog Story og er skemmst frá því að segja að þarna er á ferð innihaldslaus afþreying sem hægt er að hlæja að.

Keypti bók í gær, eftir Dan Brown, höfund Da Vinci Code. Þessi heitir Angels and Demons og byrjunin lofar ágætis spennu. Grunsamleg líkindi við plottið í Da Vinci Code. Hann er kannski bara að nota góða uppskrift oftar en einu sinni… En það kemur í ljós þegar ég kemst lengra.

Jæja, næsti tími er Línuleg algebra, held ég sé nógu vaknaður til þess að ná innihaldi hans. Þar reyndar þarf maður að glósa.