er að gera mig brjálaðan, á 5 mínútna fresti dettur sambandið út og ég þarf að refresha í svona 2 mínútur þangað til sambandið kemur aftur. Þetta er kannski einhver leið til þess að fá nemendur til að hætta að hanga á netinu og fara að læra en það er nú bara mótsögn við tilveru þráðlausa netsins svo ég kaupi það ekki. Kannski er ég bara með bilaða tölvu í höndunum sem hljómar líklega, sérstaklega þegar ég upplýsi að hún fer bráðum að eiga 4ra ára afmælið… En hver svo sem ástæðan kann að vera, þá gerir þetta mann svo andskoti pirraðan!
Í dag fer ég í nýju vinnuna klukkan 17:00. Held þetta snúist aðallega um sáluhjálp og þess háttar. Róa niður æsta tölvunotendur.
Úff, búinn að sitja yfir heimadæmum í eðlisfræði í allan dag. Er kominn með hausverk og námsleiða, vægast sagt. Kannski ég snúi mér að einhverju öðru núna, eins og til dæmis stærðfræðigreiningu eða einhverju álíka skemmtilegu…
Hef nú frá litlu að segja svo sem…
Jæja, bara kominn með heimasíðu. Veit ekki hvort hún muni standast tímans tönn, hver man t.d. ekki eftir Vitringunum, sælla minninga? Ætli ég verði nú ekki aðal gesturinn hér, stutt að fara í stundatöflu og námskeiðsvefi og svoleiðis.
Mætti á mótmæli fyrir utan bókhlöðu í gær. Það eru víst ekki til peningar fyrir kvöldopnun þar í vetur, en fregnir herma að ef allir safna flöskum í vetur muni bókhlaðan opna. Ágætis mæting og ekki spillti fyrir að þar var matreiðslumaður í fullum skrúða að reiða fram kleinur og kakó.
Nýjustu komment
RSS